MALBIKSHESTAR
  • FRÉTTIR
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • GRÓSKA
      • MYRKVA
      • GELDINGAR
        • SKÍRNIR
        • UNGHROSS
          • HEKLA
            • RÓSKA
              • SKRIÐA
                • SKÖRUNGUR
                  • ÞEYR
                  • VIDEO
                  • ELDRA EFNI
                    • FOLATOLLAR
                      • FRÁSÖGN
                        • REIÐMENNSKA
                          • RÆKTUNIN
                            • SANDKORN
                              • STÓÐHESTAR
                                • SÝNINGAR
                                  • VIÐTAL
                                  Síðsumarssýning á Hellu 08/26/2011
                                  0 Comments
                                   
                                  Picture
                                  Kynbótasýningin í ágúst 2010. Mynd: HMÓ
                                  Það voru ekki liðin nema 16 ár síðan ég fór síðast með hryssu í kynbótadóm og þá fór ég með hryssa sem ég keypti 3ja vetra fyrir fermingapeningana mína og tamdi sjálf. Þrátt fyrir að vera töluvert ryðguð í fræðunum ákvað ég samt með einungis tveggja vikna fyrirvara að slá til og skrá Myrkvu aftur í dóm núna á síðsumarssýningu á Hellu.
                                  Hugmyndin var að gera atlögu að nokkrum tölum í hæfileikadómi sem ekki heppnuðust að fullu vegna hestapestarinnar síðastliðið sumar. Myrkva er búin að vera vaxandi í allt sumar og það var því virkilega freistandi að renna henni aftur í dóm með von um betri tölur. Lesið nánar um kynbótasýningu á Hellu með því að velja "Read More".

                                  Við Myrkva náðum ágætri forsýningu þrátt fyrir að vera aðeins óöruggar í brautinni. Hún hækkaði einkunn sína fyrir brokk úr 7.5 í 8.5 og fyrir einkunn fyrir hægt stökk úr 7 í 8.5 Einkunnin 8,5 fyrir tölt og fet stóðu í stað en því miður lækkaði Myrkva fyrir vilja og geðslag úr 8.5 í 8 og skrifast það líklega mest á reynsluleysi sýnandans. Fyrir byggingu lækkaði Myrkvu um hálfan fyrir bak og lend en hækkaði um hálfan fyrir hófa. Lítilleg breyting á byggingaeinkunn en hækkaði þó úr 7.73 í 7.76. 

                                  Betur má ef duga skal hugsaði sýnandinn að lokinni forsýningu og því var brugðið á það ráð að fá ræktandann og kynbótasýningarsnillinginn Söru Ástþórsdóttir til að reyna við stóru tölurnar á yfirlitinu.

                                  Sara gerið sér lítið fyrir og hækkaði bæði einkunnina fyrir fegurð í reið úr 8 í 8.5 og einkunnina fyrir hægt tölt úr 8 í 8.5. Fleiru tölur hefðu líklega getað hækkað að auki en það kom í ljós á yfirliti að gleymst hafði með öllu að þjálfa greiða stökkið hjá Myrkvu á þessu ári. Þegar í brautina var komið og gefið var í á fulla ferð þá vildi svo illa til að Myrkva fipaðist og kýrstökk út brautina. Þar með fauk möguleikinn á hækkun fyrir bæði stökk og vilja/geðslag út um gluggann í bili.

                                  Engu að síður má vel við una, það er frábær árangur að ná 8,5 nánast á línu ásamt góðum dómsorðum. Níurnar verða bara sóttar síðar því þær eru skammt undan að okkar mati og ýmis sóknarfæri á meðan hryssan bætir við sig á degi hverjum.

                                  Endanleg niðurstaða eftir yfirlitið er því 7.80 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn er Myrkva komin með 7.79.
                                  Sjá nánari sundurliðun einkunna og dómsorð fyrir hæfileikaþáttinn hér fyrir neðan:

                                  Tölt: 8,5
                                     2) Taktgott   3) Há fótlyfta  

                                  Brokk: 8,5
                                     2) Taktgott   4) Skrefmikið  

                                  Skeið: 5,0

                                  Stökk: 8,0
                                     3) Svifmikið  

                                  Vilji og geðslag: 8,0

                                  Fegurð í reið: 8,5
                                     4) Mikill fótaburður  

                                  Fet: 8,5
                                     1) Taktgott   2) Rösklegt  

                                  Hægt tölt: 8,5

                                  Hægt stökk: 8,5
                                   


                                  Comments




                                  Leave a Reply




                                    MALBIKSHESTAR  REYKJAVÍK
                                    Tel: (+354) 691 4694 - ICELAND


                                    Picture

                                    RÆKTUNARMARKMIÐ

                                    Markmiðið er að rækta fasmikla einstaklinga með mikinn vilja, rými og fótaburð. Mikilvægt er að hrossin séu auðtamin og geðgóð.


                                  Create a free website with Weebly