MALBIKSHESTAR
  • FRÉTTIR
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • GRÓSKA
      • MYRKVA
      • GELDINGAR
        • SKÍRNIR
        • UNGHROSS
          • HEKLA
            • RÓSKA
              • SKRIÐA
                • SKÖRUNGUR
                  • ÞEYR
                  • VIDEO
                  • ELDRA EFNI
                    • FOLATOLLAR
                      • FRÁSÖGN
                        • REIÐMENNSKA
                          • RÆKTUNIN
                            • SANDKORN
                              • STÓÐHESTAR
                                • SÝNINGAR
                                  • VIÐTAL
                                  Ný verkefni 09/14/2011
                                  0 Comments
                                   
                                  Picture
                                  Auðna frá Álfhólum í ágúst 2011.
                                  Með haustinu hefst nýr kafli í tamningu og þjálfun. Eldri hrossin eru flest að ljúka sínu þjálfunartímabili og fara fljótlega í verðskuldað haustfrí á meðan yngri hrossin setjast á skólabekk. Haustið er góður tími til líta yfir farinn veg og setja ný markmið fyrir komandi vetur.
                                  Það styttist í næstu tamningartörn hjá okkur því Skírnir (5v.) og Hekla (4v.), eru væntanleg á hús í lok þessa mánaðar. Við stefnum á að taka þau á hús til áframhaldandi gangsetningar og þjálfunnar fram í nóvembermánuð áður en við förum í langþráð haustfrí frá hesthúsverkum. Til stóð að taka þriggja vetra unghryssurnar okkar til frumtamningar en það kann að bíða til vorsins vegna anna í öðrum verkefnum. Veljið "Read More" til að lesa um meira.

                                  Af eldri hryssunum er það að frétta að við fórum í síðustu viku í sveitaferð að Álfhólum og tókum þar út þjálfunina á Grósku frá Kjarnholtum I sem hefur verið í þjálfun hjá Söru síðusta mánuðinn. Gróska er á réttri leið og það verður spennandi að halda áfram með hana á nýju ári. Nú fer Gróska í verðskuldað haustfrí til áramóta en markmiðið okkar er að koma fram með Grósku í keppni á fimmgangsvængnum og renna henni síðan í gegnum kynbótadóm næsta sumar.

                                  Myrkva frá Álfhólum fór í hvíld eftir kynbótasýninguna á Hellu í lok ágústmánaðar, eftir langt og strangt þjálfunartímabil frá áramótum. Stefnan er sett á áframhaldandi þátttöku í fjórgangskeppnum á næsta keppnistímabili en einnig stefnum við á að reyna við okkur á nýjum vetvangi, í töltkeppnum. Það verður spennandi að halda áfram að þjálfa Myrkvu á komandi vetri og við stefnum auðvitað að því gera enn betur og fara yfir sjöuna í fjórgangi. Myrkva fór hæst í einkunina 6,87 á Suðurlandsmóti í ágúst en nánar verður fjallað um það mót síðar.

                                  Sú breyting hefur orðið á "stóðinu" okkar að Auðna frá Álfhólum hefur eignast nýja eigendur sem stefna með hana í spennandi nám með haustinu. Auðnu verður sárt saknað úr hesthúsinu okkar en hún er virkilega flott tölthryssa sem er sífellt að bæta við sig í getu og styrk. Við óskum nýjum eigendum innilega til hamingju með góða hryssu - það verður gaman að fylgjast með ykkur í brautinni í framtíðinni!
                                   


                                  Comments




                                  Leave a Reply




                                    MALBIKSHESTAR  REYKJAVÍK
                                    Tel: (+354) 691 4694 - ICELAND


                                    Picture

                                    RÆKTUNARMARKMIÐ

                                    Markmiðið er að rækta fasmikla einstaklinga með mikinn vilja, rými og fótaburð. Mikilvægt er að hrossin séu auðtamin og geðgóð.


                                  Create a free website with Weebly