MALBIKSHESTAR
  • FRÉTTIR
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • GRÓSKA
      • MYRKVA
      • GELDINGAR
        • SKÍRNIR
        • UNGHROSS
          • HEKLA
            • RÓSKA
              • SKRIÐA
                • SKÖRUNGUR
                  • ÞEYR
                  • VIDEO
                  • ELDRA EFNI
                    • FOLATOLLAR
                      • FRÁSÖGN
                        • REIÐMENNSKA
                          • RÆKTUNIN
                            • SANDKORN
                              • STÓÐHESTAR
                                • SÝNINGAR
                                  • VIÐTAL
                                  Hauststemning 12/16/2011
                                  0 Comments
                                   
                                  Picture
                                  Róska frá Sólheimum í haustsólinni.
                                  __Við förum vikulega í hausthagann til að fylgjast með líðan hestana á þessum árstíma og tókum nokkrar myndir af því tilefni áður en snjórinn huldi jörðu.

                                  Um næstu helgi munum við flytja stóðið okkar í Kjósina þar sem yngri hrossin okkar verða í vetrarbeit hjá Sigurbirni í Kiðafelli. Þau eru feit og fín eftir beitina í grösugum hausthaganum.



                                  _Haustvinnan með unghrossin gekk vel í október en það var kominn tími á smá hesthúshvíld fyrir fjölskylduna undir lok mánaðar eftir 15 mánaða samfellda hesthústörn. Hekla frá Reykjavík var komin vel inn í töltið og það er mikið tilhlökkunarefni að halda áfram með hana þegar tími vinnst til. Hún er litli ljóti andarunginn sem gæti breyst í svan með frekari þjálfun. Skírnir frá Reykjavík er einnig á beinu brautinni og líklega verður hann á húsi hjá okkur í vetur. Ekki vannst tími fyrir þriggja vetra hryssurnar að þessu sinni og bíða þær betri tíma með vorinu.

                                  Framundan er spennandi vetur með töluverðu annríki en húsfreyjan hefur ákveðið að setjast á skólabekk í Háskóla Íslands eftir 10 ára námshlé. Dagarnir verða þétt skipaðir á komandi vetri því nám samhliða fullu starfi, fjölskyldu og auðvitað hrossunum krefst mikillar skipulagningar. Vonandi hefst þetta allt á endanum með góðri samvinnu en við ætlum af þessum sökum aðeins að taka þrjú hross á hús þennan veturinn.

                                  Erfiðast verðum að velja verkefni vetrarins og þar verða örugglega elstu hryssurnar okkar tvær í forgangi. Það er samt synd að ná ekki að sinna bæði Heklu og hinum unghryssunum tveimur í vetur en þær koma allar á hús með vorinu. Myrkva frá Álfhólum og Gróska frá Kjarnholtum I verða í þjálfun í vetur enda stefnt með þær báðar í keppni og sýningar á nýju ári.

                                  Jólahátíðin í ár verður sú fyrsta í 25 ár án þess að hafa hesta á húsi. Desember er afar annasamur mánuður, bæði í vinnu og jólaundirbúningi og því verður oftast minna úr verki en lagt var upp með. Vonandi koma fákarnir okkar á hús fljótlega á nýju ári enda tilhlökkunin mikil að hefja nýtt ár af krafti.
                                   


                                  Comments




                                  Leave a Reply




                                    MALBIKSHESTAR  REYKJAVÍK
                                    Tel: (+354) 691 4694 - ICELAND


                                    Picture

                                    RÆKTUNARMARKMIÐ

                                    Markmiðið er að rækta fasmikla einstaklinga með mikinn vilja, rými og fótaburð. Mikilvægt er að hrossin séu auðtamin og geðgóð.


                                  Create a free website with Weebly