Picture
Myrkva frá Álfhólum í apríl 2011.
Við Myrkva frá Álfhólum gerðum okkur ferð austur á Hellu til að keppa í fjórgangi opnum flokki á Suðurlandsmóti í ágúst. Ferðirnar austur urðu á endanum þrjár því við vorum í 6. sæti eftir forkeppnina á fimmtudegi, fórum í B-úrslit á laugardegi og loks í A-úrslit sunnudegi eftir sigur í B-úrslitum.

Í A-úrslitunum unnum við okkur upp um tvö sæti og skelltum ekki minni keppnismönnum en Sigurði Sigurðarsyni og Sigurbirni Bárðarsyni aftur fyrir okkur með einkunnina 6.87.

Veljið "Read more" til að lesa nánar.

 
 
Picture
Skörungur og Þeyr leika sér í sumarhaganum.
Flestir eru þeirrar skoðunar að erfiðast sé að þjálfa bestu hrossin. Að biðja þau um afköst umfram önnur hross en gæta jafnframt hófs. Að kunna að hætta og fara af baki þegar hesturinn er sem bestur og hefur gefið þér allt sem hann á.

Það er krefjandi að þjálfa góðan hest til aukinna afkasta en það er líka auðvelt að gleyma sér í smáatriðinum og einhæfri þjálfun. Því reynir á að halda fjölbreytni í vinnubrögðum og gleyma ekki að stundum má bara leika sér! 

Veljið "Read More" til að lesa meira.

 
 
Picture
Auðna frá Álfhólum í ágúst 2011.
Með haustinu hefst nýr kafli í tamningu og þjálfun. Eldri hrossin eru flest að ljúka sínu þjálfunartímabili og fara fljótlega í verðskuldað haustfrí á meðan yngri hrossin setjast á skólabekk. Haustið er góður tími til líta yfir farinn veg og setja ný markmið fyrir komandi vetur.
Það styttist í næstu tamningartörn hjá okkur því Skírnir (5v.) og Hekla (4v.), eru væntanleg á hús í lok þessa mánaðar. Við stefnum á að taka þau á hús til áframhaldandi gangsetningar og þjálfunnar fram í nóvembermánuð áður en við förum í langþráð haustfrí frá hesthúsverkum. Til stóð að taka þriggja vetra unghryssurnar okkar til frumtamningar en það kann að bíða til vorsins vegna anna í öðrum verkefnum. Veljið "Read More" til að lesa um meira.

 
 
Picture
Kynbótasýningin í ágúst 2010. Mynd: HMÓ
Það voru ekki liðin nema 16 ár síðan ég fór síðast með hryssu í kynbótadóm og þá fór ég með hryssa sem ég keypti 3ja vetra fyrir fermingapeningana mína og tamdi sjálf. Þrátt fyrir að vera töluvert ryðguð í fræðunum ákvað ég samt með einungis tveggja vikna fyrirvara að slá til og skrá Myrkvu aftur í dóm núna á síðsumarssýningu á Hellu.
Hugmyndin var að gera atlögu að nokkrum tölum í hæfileikadómi sem ekki heppnuðust að fullu vegna hestapestarinnar síðastliðið sumar. Myrkva er búin að vera vaxandi í allt sumar og það var því virkilega freistandi að renna henni aftur í dóm með von um betri tölur. Lesið nánar um kynbótasýningu á Hellu með því að velja "Read More".

 
 
Picture
Mánasteinn frá Álfhólum, júlí 2011.
Um miðjan júlí fór ég í nokkra daga húsmæðraorlof til Söru vinkonu minnar í Álfhólum. Við fjölskyldan höfum farið í sveitinni til Söru á hverju sumri í mörg ár og dvalið í góðu yfirlæti í skemmri eða lengri tíma.

Það er alveg ómetanlegt að komast út úr bænum og dvelja í sveitinni, fylgjast með ungviðinu fæðast og ríða út á frábærum gæðingum. Þegar við vorum ung og barnlaus vorum við frjálsari og dvöldum lengur í senn en með stækkandi fjölskyldu hefur dvalartíminn styst jafnt og þétt. Það var því brugðið á það ráð að þessu sinni að senda húsmóðirna eina af stað til að ná smá forskoti áður en fjölskyldan mætti á svæðið.

Lesið meira um dvölina í Álfhólum með því að velja "Read More"

 
 
Picture
Skírnir Álfasteinsson í ágúst 2011.
Hestarnir okkar eru komnir aftur á hús í Víðidalnum eftir tveggja vikna pásu í Mosfellsdalnum. Tamningar ganga vel með unghrossin tvö og þau eru að koma á skemmtilegasta tímabilið þegar gangurinn er að opnast og skilningur að aukast. Eftir margra ára bið kemur loksins ljós hvaða hæfileikum unghrossin búa yfir og hverjir möguleikir þeirra verða í framtíðinni. 

Lesið nánar um unghrossin með því að velja "Read More".


 
 
Picture
Skörungur 2v. frá Reykjavík, júlí 2011.
Í síðasta mánuði skelltum við okkur í 3ja daga hestaferð með hryssurnar okkar, þær Auðnu og Myrkvu frá Álfhólum ásamt Grósku frá Kjarnholtum I. Þetta var strembnari ferð en ég átti von á en félagskapurinn var góður og allt gekk vel. Einnig skelltum við okkur Myrkva á Íslandsmót á Selfossi með litlum fyrirvara og lágmarks undirbúningi.

Hestaferðin hófst í Kjósinni aðra helgina í júlí og fórum við um margar af bestu reiðgötum suðvesturlands. Má þar nefna Láxárbakkana í Kjós, þjóðgarðinn á Þingvöllum og Þjórsárbakkana í Árnessýslu. Við fengum að fljóta með reyndum ferðamönnum sem voru að undirbúa hesta sína fyrir tíu daga hestaferð um fjallabak syðri og nyrðri sem hófst viku síðar. Lesið nánar um hestaferðina og Íslandsmót með því að velja "Read More".

 
 
Picture
Undir Esjunni.
Unghrossin okkar njóta sumarblíðunnar þessa dagana í kafgrasi á Kjalarnesinu. Það er ávallt gaman að fylgjast með unghrossunum og meta kosti þeirra og galla. Vonin er dýrmæt og unghrossin fá að njóta vafans í uppvexti.

Meðfylgjandi eru mynd er af tveggja vetra folunum okkar undan Ágústínusi frá Melaleiti (8.61) og þriggja vetra hryssunum, Skriðu og Rósku

Sjáið fleiri með því að velja "Read More"

 
 
Picture
Nú er það svart
Fyrir hálfum mánuð slepptum við hryssurnar okkar sem voru í vetrrþjálfun á grænar grundir í Mosfellsdalnum. Í stað þeirra tókum við sex unghross á hús til frum- og fortamningar.

Skírnir frá Reykjavík (5v.) og Hekla frá Reykjavík (4v.) hafa verið járnuð og verður tamningu þeirra og gangsetningu fram haldið frá liðnu hausti. Hin unghrossin fjögur, sem eru tveggja og þriggja vetra, voru öll teymd og strokin, klippt og gefið ormalyf. Þau fá að njóta frelsisins í sumar en unghryssrnar okkar tvær, Skriða og Róska, koma væntanlega til frumtamningar með haustinu.

 
 
Picture
Auðna frá Álfhólum, hægt tölt. Mynd: HMÓ
Við Myrkva frá Álfhólum heimsóttum Andvara um liðna helgi til að reyna okkur við heimamenn og gesti þeirra á opnu íþróttarmóti félagsins. Við skráðum okkur að þessu sinni í opinn flokk (1. flokk) í fjórgang og kepptum þar við atvinnumenn og þaulreynda keppnismenn og konur. Niðurstaðan var ásættanleg, við hlutum 6,30 í einkunn í forkeppni, sömu tölu og á Reykjavíkurmeistaramótinu fyrir tveimur vikum og 6,60 í úrslitum.

En það var ekki einungis Myrkva sem brá sér á völlinn um helgina því við Auðna frá Álfhólum mátuðum Hvammsvöllinn í firmakeppni Fáks á föstudagskvöld. Lesið meira um mótastand helgarinnar undir "Read More".


 



    MALBIKSHESTAR  REYKJAVÍK
    Tel: (+354) 691 4694 - ICELAND


    Picture

    RÆKTUNARMARKMIÐ

    Markmiðið er að rækta fasmikla einstaklinga með mikinn vilja, rými og fótaburð. Mikilvægt er að hrossin séu auðtamin og geðgóð.