![]() Skriða frá Reykjavík er fimm vetra klárhryssa úr okkar ræktun undan Glampasyninum Mola frá Skriðu. Skriða var frumtamin í tvo mánuði síðastliðið sumar og kom aftur á hús til okkar í lok maímánaðar til áframhaldandi tamningar og þjálfunar í sumar. Skriða fer vel af stað og er fljót til með góðganginn eins og flest afkvæmi Spólu. Hún er með flottan fótaburð og fallegt skref. Þetta er efnileg klárhryssa og lofar góðu með framhaldið að lokinni þriggja mánaða tamningu.
0 Comments
Leave a Reply. |