MALBIKSHESTAR
  • FRÉTTIR
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • GRÓSKA
      • MYRKVA
      • GELDINGAR
        • SKÍRNIR
        • UNGHROSS
          • HEKLA
            • RÓSKA
              • SKRIÐA
                • SKÖRUNGUR
                  • ÞEYR
                  • VIDEO
                  • ELDRA EFNI
                    • FOLATOLLAR
                      • FRÁSÖGN
                        • REIÐMENNSKA
                          • RÆKTUNIN
                            • SANDKORN
                              • STÓÐHESTAR
                                • SÝNINGAR
                                  • VIÐTAL

                                  IS2004288560 GRÓSKA FRÁ KJARNHOLTUM I

                                  Picture
                                  Gróska frá Kjarnholtum I, maí 2011.
                                  Brúntvístjörnótt
                                  Kynbótamat 114 stig

                                  F. Askur frá Kanastöðum (8.44)
                                  Ff. Svartur frá Unalæk (8.54)
                                  Fm. Askja frá Miðsitju (8.16, þar af 8,43 fyrir hæfileika)
                                  Fmf. Hervar frá Sauðárkróki (8.27)

                                  M. Kjarnveig frá Kjarnholtum (8.14, þar af 8.48 fyrir hæfileika)
                                  Mf. Hrafn frá Holtsmúla (8.56)
                                  Mm. Glókolla frá Kjarnholtum (7,61)

                                  Kjarnveig frá Kjarnholtum I, móðir Grósku, er alsystir Kolfinns frá Kjarnholtum I undan stólpagæðingnum Hrafni frá Holtsmúla. Kjarnveig er fyrstu verðlauna hryssa með 8,14 í aðaleinkunn, þar af 8,5 fyrir alla þætti hæfileika nema 8,3 fyrir geðslag. Kjarnveig var sýnd með góðum árangri í gæðingakeppni árið 2000 og var meðal annars í B-úrslitum A-flokks gæðinga á Landsmóti 2000.

                                  Hrafn frá Holsmúla, faðir Kjarnveigar, þarf vart að kynna. Hann hefur markað djúp spor í íslenskri hrossarækt í gegnum bæði syni sína og dætur. Undan Glókollu og Hrafni eru alls 5 afkvæmi, öll dæmd með meðaleinkunina 8.15.

                                  Glókolla frá Kjarnholtum I, móðir Kjarnveigar, átti alls 15 afkvæmi, þar af eru sjö með 1.verðlaun og tvö með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Glókolla hlaut sjálf heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 1991 og 1997 (BLUP).

                                  Askur frá Kanastöðum, faðir Grósku, var undan Svarti frá Unalæk og Öskju Hervarsdóttur frá Miðsitju. Askur var efstur í flokki 5 vetra stóðhesta á landsmótinu í Reykjavík árið 2000 en drapst af slysförum haustið 2003. Askur hlaut í einkunn 8,18 fyrir sköpulag, 8,62 fyrir hæfileika og 8,44 í aðaleinkunn.

                                  Askja frá Miðsitju, móðir Asks, hefur skilað öllum sýndum afkvæmum í 1. verðlaun með meðaleinkunina 8.34, alls 7 afkvæmi í dóm. Askja hlaut mjög góðan dóm á sínum tíma og fékk meðal annars 9,2 fyrir tölt og 9,5 fyrir brokk.

                                  Svartur frá Unalæk, faðir Asks, er undan gæðingnum Kjarval frá Sauðárkróki og heiðursverðlaunahryssunni Fiðlu frá Snartastöðum, Hvanneyrar-Ófeigsdóttir. Svartur var í öðru sæti í flokki 6 vetra stóðhesta á landsmóti á Hellu árið 1994. Þar hlaut Svartur einkunina 8.18 fyrir byggingu og 8.90 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir brokk, stökk og fegurð í reið, 9,5 fyrir vilja og geðslag og 10 fyrir skeið.

                                  Picture
                                  Efnilegur skeiðsprettur í maí 2011.
                                  Gróska er stór og myndarleg með afar trausta lund, góðan vinnuvilja ásamt rúmum og afkastamiklum gangtegundum. Gróska var ekki frumtamin fyrr en á sjötta vetri, haustið 2009.

                                  Gróska er efni í afar öflugan keppnishest á fimmgangsvængnum með allar gangtegundir jafnar og góðar. Gróska er sífellt að bæta við sig en hún þarf meiri styrk og þjálfun til fullra afkasta.

                                  Við stefnum við með Grósku bæði í kynbótadóm og á keppnisbrautina (2012).


                                  MALBIKSHESTAR | REYKJAVÍK - ÍSLAND | Tel: (+354) 691 4694 | MALBIKSHESTAR@MALBIKSHESTAR.NET
                                  Create a free website with Weebly