Nýtt keppnistímabil 02/23/2012
![]() Myrkva á hægu tölti, mynd: Dagur Brynjólfsson. Um helgina mættum við Myrkva frá Álfhólum á Bleika töltmótið í Víðidal til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Þetta er okkar fyrsta töltmót og líklega eru liðin ein fimmtán ár síðan ég reið síðast töltprógramm ein í braut og ekki minna en tíu ár síðan ég tók síðasti þátt í töltikeppni. Þetta er ekki okkar sterkasta grein, Myrkva er mun sterkari á fjórgangsvængnum en við höfum gott af æfingunni og undirbúnings þjálfuninni fyrir töltmót. Það er líka um að gera að æfa sig í þessari grein þar sem ekki eru önnur mót en töltmót í boði hjá stærsta hestamannafélagi landsins fyrr en blásið verður til Reykjavíkurmeistaramóts í maíbyrjun. ![]() Myrkva á greiðu tölti, mynd: Dagur Brynjólfsson. Við Myrkva skráðum okkur til leiks í opna flokkinum og hlutum einkunnina 6,20 í forkeppni, sem hefði skilað okkur í þriðja sætið inn í A-úrslit í styrkleikaflokknum fyrir neðan. Við fengum tækifæri til að æfa okkur í B-úrslitum í opna flokknum, fengum 6,33 í einkunn sem verður að teljast ásættanlegt á okkar fyrsta töltmóti í byrjun vetrar. Hér má sjá fleiri myndir frá Bleika töltmótinu. Ég er sátt við formið á okkur miðað við árstíma en aðeins er liðinn rúmur mánuður síðan Myrkva kom á hús. Við þurfum hins vegar að fínstilla eitt og annað fyrir næsta mót og vonandi verðum við komnar í gott form fyrir aðalmótin í vor en þá ætlum við að reyna okkur í enn annari greininni, B-flokki gæðinga. Add Comment Vetur konungur 01/30/2012
![]() Myrkva í hausthaganum 2011. Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að veturinn er genginn í garð í allri sinni dýrð. Álíka vetur höfum við ekki upplifað ì að minnsta kosti áratug. Umhleypingarnar eru verstar, blindbylur og rigning til skiptist með tilheyrandi òfærð og hálku. Það er vissulega svekkjandi að geta ekki riðið almennilega út utandyra vikum saman því færið hefur verið frábært þá daga sem veðrið er skaplegt. Tíminn er því að mestu nýttur til nauðsynlegra verkefna innandyra í reiðhöllinni og prísa ég mig sæla að hafa aðgengi að frábærri inniaðstöðu. Hryssurnar okkar koma afar vel undan hausti og hafa líklega aldrei verið betri í upphafi vetrar. Hver dagur færir okkur vonandi nær takmarkinu og ég hef góða tilfinningu fyrir nýju ári. Ég er enn að bíða eftir fari fyrir síðustu hestana okkar í bæinn en fyrirhugaðar ferðir fallið niður í þessari veðráttu. Það verður spennandi að halda áfram þar sem frá var horfið með yngri hrossin. En hestamennskan er tímafrekt áhugamál og fyrir venjulegt fjölskyldufólk getur reynst erfitt að réttlæta langa dvöl í hesthúsinu á þessum árstíma. Við brugðum því á það ráð að fá duglega stúlku til okkar í hesthúsið sem mun aðstoðar okkur í vetur, bæði við hirðingar og þjálfun unghestanna. Hesthúsið er vissulega góð hvíld frá erli dagsins og mikilvægur staður fyrir alla hestamenn til að endurhlaða starfsorkuna fyrir nýjan vinnudag en það má ekki vera kvöð að sinna áhugamálinu sínu. Með hverjum degi styttist í vorið og lok dimmra og kaldra vetrarkvölda. Tilhugsunin um grænar grundir og bjarta daga kemur bæði knapa og hesti yfir erfiðasta þjálfunartímabil ársins. Hauststemning 12/16/2011
![]() Róska frá Sólheimum í haustsólinni. __Við förum vikulega í hausthagann til að fylgjast með líðan hestana á þessum árstíma og tókum nokkrar myndir af því tilefni áður en snjórinn huldi jörðu. Um næstu helgi munum við flytja stóðið okkar í Kjósina þar sem yngri hrossin okkar verða í vetrarbeit hjá Sigurbirni í Kiðafelli. Þau eru feit og fín eftir beitina í grösugum hausthaganum. _Haustvinnan með unghrossin gekk vel í október en það var kominn tími á smá hesthúshvíld fyrir fjölskylduna undir lok mánaðar eftir 15 mánaða samfellda hesthústörn. Hekla frá Reykjavík var komin vel inn í töltið og það er mikið tilhlökkunarefni að halda áfram með hana þegar tími vinnst til. Hún er litli ljóti andarunginn sem gæti breyst í svan með frekari þjálfun. Skírnir frá Reykjavík er einnig á beinu brautinni og líklega verður hann á húsi hjá okkur í vetur. Ekki vannst tími fyrir þriggja vetra hryssurnar að þessu sinni og bíða þær betri tíma með vorinu. Framundan er spennandi vetur með töluverðu annríki en húsfreyjan hefur ákveðið að setjast á skólabekk í Háskóla Íslands eftir 10 ára námshlé. Dagarnir verða þétt skipaðir á komandi vetri því nám samhliða fullu starfi, fjölskyldu og auðvitað hrossunum krefst mikillar skipulagningar. Vonandi hefst þetta allt á endanum með góðri samvinnu en við ætlum af þessum sökum aðeins að taka þrjú hross á hús þennan veturinn. Erfiðast verðum að velja verkefni vetrarins og þar verða örugglega elstu hryssurnar okkar tvær í forgangi. Það er samt synd að ná ekki að sinna bæði Heklu og hinum unghryssunum tveimur í vetur en þær koma allar á hús með vorinu. Myrkva frá Álfhólum og Gróska frá Kjarnholtum I verða í þjálfun í vetur enda stefnt með þær báðar í keppni og sýningar á nýju ári. Jólahátíðin í ár verður sú fyrsta í 25 ár án þess að hafa hesta á húsi. Desember er afar annasamur mánuður, bæði í vinnu og jólaundirbúningi og því verður oftast minna úr verki en lagt var upp með. Vonandi koma fákarnir okkar á hús fljótlega á nýju ári enda tilhlökkunin mikil að hefja nýtt ár af krafti. Suðurlandsmót 11/07/2011
![]() Myrkva frá Álfhólum í apríl 2011. Við Myrkva frá Álfhólum gerðum okkur ferð austur á Hellu til að keppa í fjórgangi opnum flokki á Suðurlandsmóti í ágúst. Ferðirnar austur urðu á endanum þrjár því við vorum í 6. sæti eftir forkeppnina á fimmtudegi, fórum í B-úrslit á laugardegi og loks í A-úrslit sunnudegi eftir sigur í B-úrslitum. Í A-úrslitunum unnum við okkur upp um tvö sæti og skelltum ekki minni keppnismönnum en Sigurði Sigurðarsyni og Sigurbirni Bárðarsyni aftur fyrir okkur með einkunnina 6.87. Veljið "Read more" til að lesa nánar. Að leika sér 10/04/2011
![]() Skörungur og Þeyr leika sér í sumarhaganum. Flestir eru þeirrar skoðunar að erfiðast sé að þjálfa bestu hrossin. Að biðja þau um afköst umfram önnur hross en gæta jafnframt hófs. Að kunna að hætta og fara af baki þegar hesturinn er sem bestur og hefur gefið þér allt sem hann á. Það er krefjandi að þjálfa góðan hest til aukinna afkasta en það er líka auðvelt að gleyma sér í smáatriðinum og einhæfri þjálfun. Því reynir á að halda fjölbreytni í vinnubrögðum og gleyma ekki að stundum má bara leika sér! Veljið "Read More" til að lesa meira. Ný verkefni 09/14/2011
![]() Auðna frá Álfhólum í ágúst 2011. Með haustinu hefst nýr kafli í tamningu og þjálfun. Eldri hrossin eru flest að ljúka sínu þjálfunartímabili og fara fljótlega í verðskuldað haustfrí á meðan yngri hrossin setjast á skólabekk. Haustið er góður tími til líta yfir farinn veg og setja ný markmið fyrir komandi vetur. Það styttist í næstu tamningartörn hjá okkur því Skírnir (5v.) og Hekla (4v.), eru væntanleg á hús í lok þessa mánaðar. Við stefnum á að taka þau á hús til áframhaldandi gangsetningar og þjálfunnar fram í nóvembermánuð áður en við förum í langþráð haustfrí frá hesthúsverkum. Til stóð að taka þriggja vetra unghryssurnar okkar til frumtamningar en það kann að bíða til vorsins vegna anna í öðrum verkefnum. Veljið "Read More" til að lesa um meira. Síðsumarssýning á Hellu 08/26/2011
![]() Kynbótasýningin í ágúst 2010. Mynd: HMÓ Það voru ekki liðin nema 16 ár síðan ég fór síðast með hryssu í kynbótadóm og þá fór ég með hryssa sem ég keypti 3ja vetra fyrir fermingapeningana mína og tamdi sjálf. Þrátt fyrir að vera töluvert ryðguð í fræðunum ákvað ég samt með einungis tveggja vikna fyrirvara að slá til og skrá Myrkvu aftur í dóm núna á síðsumarssýningu á Hellu. Hugmyndin var að gera atlögu að nokkrum tölum í hæfileikadómi sem ekki heppnuðust að fullu vegna hestapestarinnar síðastliðið sumar. Myrkva er búin að vera vaxandi í allt sumar og það var því virkilega freistandi að renna henni aftur í dóm með von um betri tölur. Lesið nánar um kynbótasýningu á Hellu með því að velja "Read More". Húsmæðraorlof í Álfhólum 08/18/2011
![]() Mánasteinn frá Álfhólum, júlí 2011. Um miðjan júlí fór ég í nokkra daga húsmæðraorlof til Söru vinkonu minnar í Álfhólum. Við fjölskyldan höfum farið í sveitinni til Söru á hverju sumri í mörg ár og dvalið í góðu yfirlæti í skemmri eða lengri tíma. Það er alveg ómetanlegt að komast út úr bænum og dvelja í sveitinni, fylgjast með ungviðinu fæðast og ríða út á frábærum gæðingum. Þegar við vorum ung og barnlaus vorum við frjálsari og dvöldum lengur í senn en með stækkandi fjölskyldu hefur dvalartíminn styst jafnt og þétt. Það var því brugðið á það ráð að þessu sinni að senda húsmóðirna eina af stað til að ná smá forskoti áður en fjölskyldan mætti á svæðið. Lesið meira um dvölina í Álfhólum með því að velja "Read More" Tamningarnar ganga vel 08/09/2011
![]() Skírnir Álfasteinsson í ágúst 2011. Hestarnir okkar eru komnir aftur á hús í Víðidalnum eftir tveggja vikna pásu í Mosfellsdalnum. Tamningar ganga vel með unghrossin tvö og þau eru að koma á skemmtilegasta tímabilið þegar gangurinn er að opnast og skilningur að aukast. Eftir margra ára bið kemur loksins ljós hvaða hæfileikum unghrossin búa yfir og hverjir möguleikir þeirra verða í framtíðinni. Lesið nánar um unghrossin með því að velja "Read More". Hestaferð og Íslandsmót 08/04/2011
![]() Skörungur 2v. frá Reykjavík, júlí 2011. Í síðasta mánuði skelltum við okkur í 3ja daga hestaferð með hryssurnar okkar, þær Auðnu og Myrkvu frá Álfhólum ásamt Grósku frá Kjarnholtum I. Þetta var strembnari ferð en ég átti von á en félagskapurinn var góður og allt gekk vel. Einnig skelltum við okkur Myrkva á Íslandsmót á Selfossi með litlum fyrirvara og lágmarks undirbúningi. Hestaferðin hófst í Kjósinni aðra helgina í júlí og fórum við um margar af bestu reiðgötum suðvesturlands. Má þar nefna Láxárbakkana í Kjós, þjóðgarðinn á Þingvöllum og Þjórsárbakkana í Árnessýslu. Við fengum að fljóta með reyndum ferðamönnum sem voru að undirbúa hesta sína fyrir tíu daga hestaferð um fjallabak syðri og nyrðri sem hófst viku síðar. Lesið nánar um hestaferðina og Íslandsmót með því að velja "Read More". |














