MALBIKSHESTAR
  • FRÉTTIR
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • GRÓSKA
      • MYRKVA
      • GELDINGAR
        • SKÍRNIR
        • UNGHROSS
          • HEKLA
            • RÓSKA
              • SKRIÐA
                • SKÖRUNGUR
                  • ÞEYR
                  • VIDEO
                  • ELDRA EFNI
                    • FOLATOLLAR
                      • FRÁSÖGN
                        • REIÐMENNSKA
                          • RÆKTUNIN
                            • SANDKORN
                              • STÓÐHESTAR
                                • SÝNINGAR
                                  • VIÐTAL

                                  IS2008257392 RÓSKA FRÁ SÓLHEIMUM

                                  Picture
                                  Rauðtvístjörnótt
                                  Kynbótamat 116 stig

                                  F. Arður frá Brautarholti (8.49)
                                  Ff. Orri frá Þúfu (8.34)
                                  Fm. Askja frá Miðsitju (8.16)
                                  Fmf: Hervar frá Sauðárkróki (8.27)

                                  M. Sunna frá Reykjavík (7.95)
                                  Mf. Húni frá Hrafnhólum (7.75)
                                  Mm. Nótt frá Keldudal (7,59)
                                  Mmf. Hrafn frá Holtsmúla (8.56)


                                  Róska er efnileg unghryssa. Hún  fer mest á brokki en grípur í töltið, hágeng og takthrein. Róska verður frumtamin vorið 2012.

                                  Sunna frá Reykjavík, móðir Rósku, hefur hæst hlotið einkuna 8,0 fyrir sköpulag og 8.10 fyrir hæfileika en ekki í sama dómi, hæsta aðaleinkunn er 7.95. Hún hlaut 8,5 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið ásamt 8 fyrir skeið, stökk og geðslag. Einnig hlaut hún 8,5 fyrir bæði fótagerð og réttleika.

                                  Sunnu þekki ég vel af eigin raun því hún var hjá mér í þjálfun veturinn 1996. Ég keppti meðal annars á henni í A-úrslitum í tölti á framhaldsskólamóti sama ár en Sunna er undan fótaburðahestinum Húna frá Hrafnhólum sem ég var með í þjálfun á árunum 1995-1996 og keppti þónokkuð í tölti, fimmgangi og einnig í A-flokki.

                                  Undan Sunnu hafa verið sýndar tvær hryssur í kynbótadóm. Spenna frá Sólheimum, undan Smára frá Skagaströnd, er með 1. verðlauna, 8.22 fyrir hæfileika, 8.03 í aðaleinkunn. Þar af 9 fyrir stökk og vilja og geðslag og 8,5 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. Snælda frá Sólheimum, undan Orrasyninum Ganta frá Hafnarfirði, er með 7,94 fyrir hæfileika, 7.85 í aðaleinkunn. Þar af 8,5 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag og 8 fyrir brokk og fegurð í reið.

                                  Arður frá Brautarholti hefur hlotið 8.60 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Arður er undan Orra frá Þúfu og gæðingamóðurinni Öskju frá Miðsitju. Undan Öskju hafa verið sýnd 7 afkvæmi og öll hafa þau hlotið góð 1. verðlaun, meðaleinkunn þeirra er 8.37. Stóðhestarnir Askur, Akkur og Arður eru allir heilsteyptir gæðingar og Alda Dynsdóttir var eftirminnilegt 4 vetra trippi á landsmótinu 2004.  

                                  Create a free website with Weebly