MALBIKSHESTAR
  • FRÉTTIR
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • GRÓSKA
      • MYRKVA
      • GELDINGAR
        • SKÍRNIR
        • UNGHROSS
          • HEKLA
            • RÓSKA
              • SKRIÐA
                • SKÖRUNGUR
                  • ÞEYR
                  • VIDEO
                  • ELDRA EFNI
                    • FOLATOLLAR
                      • FRÁSÖGN
                        • REIÐMENNSKA
                          • RÆKTUNIN
                            • SANDKORN
                              • STÓÐHESTAR
                                • SÝNINGAR
                                  • VIÐTAL

                                  IS2009125217 SKÖRUNGUR FRÁ REYKJAVÍK

                                  Picture
                                  Skörungur 2ja vetra í júlí 2011.
                                  Kynbótamat 106 stig

                                  F. Ágústínus frá Melaleiti (8,.61)
                                  Ff. Kolfinnur frá Kjarnholtum (8.45)
                                  Fm. Gnótt frá Steinmóðarbæ (8.01)

                                  M. Spóla frá Brekkukoti (7.72) 
                                  Mf. Kári frá Grund (ae. 8.01)
                                  Mff. Ófeigur frá Hvanneyri (8.55)
                                  Mm. Kýrholts-Rauðka frá Kýrholti

                                  Picture

                                  Skörungur er stór og afar myndarlegur ungfoli, háfættur með langan og fallega settann háls. 

                                  Ágústínus frá Melaleiti, faðir Skörungs, er hæst dæmda afkvæmi skörungsins Kolfinns frá Kjarnholtum með 8,13 fyrir byggingu og 8,93 fyrir hæfileika. Ágústínus hefur á hæfileikavængnum hlotið 9,5 fyrir brokk, vilja og geðslag, 9 fyrir skeið og stökk, 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið. Fyrir byggingu hefur hann meðal annars hlotið 8,5 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend og hófa.  

                                  Spóla frá Brekkukoti hefur gefið okkur mörg hágeng og töffaraleg afkvæmi. Spóla var undan stóðhestinum Kára frá Grund sem var sammæðra Gusti frá Grund og undan stóðhestinum Ófeigi frá Hvanneyri. Skörungur er síðasta afkvæmi móður sinnar en ber sterkan svip föður síns.


                                  Create a free website with Weebly